Söngljóð eftir Davíð.
15 Jehóva, hver fær að gista í tjaldi þínu?
Hver fær að búa á þínu heilaga fjalli?+
2 Sá sem lifir hreinu lífi,+
gerir það sem er rétt+
og talar sannleika í hjarta sínu.+
3 Hann ber ekki út róg með tungu sinni,+
gerir náunga sínum ekkert illt+
og talar ekki illa um vini sína.+
4 Hann forðast þá sem hegða sér svívirðilega+
en heiðrar þá sem óttast Jehóva.
Hann heldur loforð sín þó að það komi sér illa fyrir hann.+
5 Hann lánar ekki peninga gegn vöxtum+
og þiggur ekki mútur í máli gegn saklausum.+
Sá sem gerir þetta stendur stöðugur að eilífu.+