Sálmur
Til tónlistarstjórans. Eftir Davíð þjón Jehóva.
3 Orðin úr munni hans særa og blekkja,
hann kann ekki að gera það sem er gott.
4 Jafnvel í rúmi sínu hefur hann illt í hyggju,
hann fetar ranga braut
og hafnar ekki hinu illa.
5 Jehóva, tryggur kærleikur þinn nær til himins,+
trúfesti þín til skýjanna.
Þú, Jehóva, heldur lífinu í* mönnum og dýrum.+
7 Hversu dýrmætur er ekki tryggur kærleikur þinn, Guð!+
Mennirnir leita skjóls í skugga vængja þinna.+
11 Láttu ekki fætur hrokafullra traðka á mér
né hendur illra manna hrekja mig burt.
12 Þarna liggja illvirkjarnir fallnir,
þeim hefur verið steypt um koll og geta ekki risið upp aftur.+