Sálmur
FJÓRÐA BÓK
(Sálmur 90–106)
Bæn Móse, manns hins sanna Guðs.+
90 Jehóva, þú hefur verið bústaður* okkar+ kynslóð eftir kynslóð.
Frá eilífð til eilífðar ert þú Guð.+
3 Þú lætur dauðlegan manninn verða aftur að mold,
þú segir: „Snúið aftur til moldar, þið mannanna börn.“+
5 Þú hrífur mennina burt,+ þeir verða eins og svefninn,
þeir eru eins og grasið sem sprettur að morgni.+
En þau einkennast af áhyggjum og sorgum,
þau líða fljótt og við fljúgum burt.+
11 Hver skilur mátt reiði þinnar?
Bræði þín er eins sterk og óttinn sem þú verðskuldar.+
13 Snúðu aftur, Jehóva!+ Hve lengi varir þetta?+
Hafðu samúð með þjónum þínum.+
14 Viltu seðja okkur að morgni með tryggum kærleika þínum+
svo að við getum glaðst og fagnað+ alla daga okkar.
15 Veittu okkur gleði eins marga daga og þú hefur þjakað okkur,+
eins mörg ár og við höfum þolað hörmungar.+
17 Megi Guð okkar, Jehóva, sýna okkur góðvild.
Láttu verk handa okkar takast vel,
já, megi verk handa okkar blessast.+