-
2. Mósebók 37:10–15Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
10 Hann gerði borðið úr akasíuviði.+ Það var tvær álnir á lengd, ein alin á breidd og ein og hálf alin á hæð.+ 11 Hann lagði það hreinu gulli og gerði kant* úr gulli hringinn í kring. 12 Síðan gerði hann þverhandarbreiðan* lista hringinn í kring og gullkant* á listann. 13 Hann steypti fjóra hringi úr gulli og setti þá á hornin fjögur þar sem fæturnir voru festir. 14 Hringirnir til að halda stöngunum sem átti að bera borðið með voru þétt við listann. 15 Hann gerði burðarstangirnar úr akasíuviði og lagði þær gulli.
-