Þriðjudagur 27. október
„Umbreytist með því að endurnýja hugarfarið.“ – Rómv. 12:2.
Margir sem létu áður í ljós dýrslega eiginleika hafa gert stórkostlegar breytingar með hjálp anda Guðs. (Jes. 65:25) Þeir hafa losað sig við óæskilega eiginleika. (Ef. 4:22–24) Þjónar Guðs eru auðvitað eftir sem áður ófullkomnir og gera mistök. En Jehóva hefur sameinað „alls konar fólk“ sem elskar Jehóva og hvert annað og býr þess vegna við frið og einingu. (Tít. 2:11) Enginn annar en almáttugur Guð hefði getað framkvæmt þetta kraftaverk! Orð hans rætast alltaf. (Jes. 55:10, 11) Andlega paradísin er nú þegar til. Jehóva hefur skapað fjölskyldu tilbiðjenda sem er einstök. Meðal fólks hans er mesti friður sem hægt er að hafa núna og við getum verið örugg. (Sálm. 72:7) Við viljum þess vegna hjálpa eins mörgum og hægt er að verða hluti af þessari fjölskyldu. Við getum gert það með því að einbeita okkur að því að gera fólk að lærisveinum. – Matt. 28:19, 20. w24.04 23 gr. 13, 15
Miðvikudagur 28. október
„Við höfum huga Krists.“ – 1. Kor. 2:16.
Jesús elskaði Jehóva af öllum huga sínum. Hann vissi hver vilji Guðs var með hann og var ákveðinn í að breyta í samræmi við það, jafnvel þótt það þýddi að hann þyrfti að þjást. Jesús var einbeittur í að gera vilja föður síns og lét ekkert trufla sig. Pétur og hinir postularnir fengu að vera með Jesú og kynntust milliliðalaust hvernig hann hugsaði. Þegar hann skrifaði fyrra innblásna bréfið hvatti hann kristna menn til að herklæðast sama hugarfari og Kristur gerði. (1. Pét. 4:1) Hér notar Pétur hernaðarlegt hugtak. Ef þjónar Jehóva líkja eftir hugarfari Jesú hafa þeir yfir öflugu vopni að ráða í stríðinu við syndugar tilhneigingar og heim sem er stjórnað af Satan. – 2. Kor. 10:3–5; Ef. 6:12. w25.03 8–9 gr. 1–3
Fimmtudagur 29. október
„Hugsanir mannshjartans eru eins og djúp vötn en hygginn maður dregur þær fram.“ – Orðskv. 20:5.
Hverju ættirðu að leitast við að kynnast hjá hinum einstaklingnum í tilhugalífinu? Áður en þú verður of tilfinningalega tengdur honum getur verið gott að ræða ýmis mikilvæg mál eins og hvaða markmið hann hefur. Hvernig geturðu kynnst hinum einstaklingnum eins og hann er í raun og veru? Ein besta leiðin til þess er að tala opinskátt og af hreinskilni, spyrja spurninga og hlusta síðan vel. (Jak. 1:19) Þið getið kannski gert eitthvað saman sem auðveldar ykkur að spjalla saman eins og borða saman, fara í göngutúr á almenningssvæði eða í boðunina. Þið kynnist líka ýmsu um hvort annað þegar þið eruð með vinum og fjölskyldu hvort annars. Skipuleggið auk þess eitthvað sem leiðir í ljós hvað hinn einstaklingurinn gerir í mismunandi aðstæðum og með mismunandi fólki. w24.05 27–28 gr. 6, 7