8 Ég ætla að stíga niður, bjarga því úr höndum Egypta+ og leiða það út úr landinu og inn í gott og víðáttumikið land sem flýtur í mjólk og hunangi,+ á svæði Kanverja, Hetíta, Amoríta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta.+
7 Leggið nú af stað í átt að fjalllendi Amoríta+ og að nágrannasvæðum þeirra, það er Araba,+ fjalllendinu, Sefela, Negeb og sjávarströndinni,+ í átt að landi Kanverja og Líbanon,*+ allt til fljótsins mikla, Efrat.+
11 Landið sem þið farið nú inn í og takið til eignar er land með fjöllum og dalsléttum.+ Það drekkur í sig regnið sem fellur af himni.+12 Það er land sem Jehóva Guð ykkar annast. Augu Jehóva Guðs ykkar vaka stöðugt yfir því, allt frá ársbyrjun til ársloka.