-
Jósúabók 23:12, 13Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
12 En ef þið yfirgefið hann og snúið ykkur að þeim sem eftir eru af þjóðunum í landinu,+ stofnið til hjúskapartengsla*+ við þá og umgangist þá 13 skuluð þið vita að Jehóva Guð ykkar heldur ekki áfram að hrekja þessar þjóðir burt.+ Þær verða ykkur gildra og snara, svipa á baki ykkar+ og þyrnir í augum ykkar þar til ykkur hefur verið útrýmt úr þessu góða landi sem Jehóva Guð ykkar hefur gefið ykkur.
-
-
1. Konungabók 11:1, 2Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
11 En Salómon konungur elskaði margar útlendar konur+ auk dóttur faraós.+ Það voru konur komnar af Móabítum,+ Ammónítum,+ Edómítum, Sídoningum+ og Hetítum.+ 2 Þær voru af þjóðunum sem Jehóva hafði sagt um við Ísraelsmenn: „Þið megið ekki eiga náin samskipti við þær* og þær mega ekki eiga náin samskipti við ykkur því að þær munu snúa hjörtum ykkar til guða sinna.“+ En Salómon bast þeim sterkum böndum og elskaði þær.*
-