-
1. Samúelsbók 10:24Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
24 Samúel sagði við fólkið: „Sjáið þið þann sem Jehóva hefur valið?+ Hann ber af allri þjóðinni.“ Þá hrópaði allt fólkið: „Lengi lifi konungurinn!“
-
-
1. Samúelsbók 16:12, 13Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
12 Ísaí sendi þá eftir honum og leiddi hann fram. Hann var myndarlegur, rauðbirkinn og með falleg augu.+ „Þetta er hann,“ sagði Jehóva. „Stattu upp og smyrðu hann.“+ 13 Samúel tók þá hornið með olíunni+ og smurði hann að bræðrum hans viðstöddum. Frá þeim degi var andi Jehóva yfir Davíð.+ Síðan fór Samúel til Rama.+
-