-
4. Mósebók 21:13Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
13 Þeir héldu svo þaðan og tjölduðu á svæðinu við Arnondal+ en hann er í óbyggðunum sem teygja sig frá landamærum Amoríta og myndar landamærin að Móab, landamærin milli Móabs og Amoríta.
-
-
Dómarabókin 11:17, 18Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
17 Þá sendi Ísrael menn til konungsins í Edóm+ og sagði: „Viltu leyfa okkur að fara um land þitt,“ en konungur Edóms gaf því ekki gaum. Þeir sendu einnig boð til konungsins í Móab+ en hann féllst ekki á beiðni þeirra. Ísraelsmenn héldu þá kyrru fyrir í Kades.+ 18 Þegar þeir héldu áfram ferð sinni um óbyggðirnar fóru þeir fram hjá Edómslandi+ og Móabslandi. Þeir fóru austur fyrir Móabsland+ og settu búðir sínar í grennd við Arnon. Þeir fóru ekki inn fyrir landamæri Móabs+ en þau lágu um Arnon.
-