-
1. Kroníkubók 14:10–12Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
10 Davíð spurði Guð: „Á ég að fara gegn Filisteum? Ætlarðu að gefa þá í mínar hendur?“ Jehóva svaraði honum: „Farðu gegn þeim. Ég mun vissulega gefa þá í þínar hendur.“+ 11 Davíð fór þá upp til Baal Perasím+ og sigraði þá þar. Hann sagði: „Hinn sanni Guð hefur brotist í gegnum fylkingar óvina minna með hendi minni eins og vatnsflaumur sem ryður sér leið.“ Þess vegna er staðurinn nefndur Baal Perasím.* 12 Filistear skildu guði sína eftir þar og menn brenndu þá í eldi+ að fyrirskipun Davíðs.
-