-
2. Mósebók 1:19Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
19 Ljósmæðurnar svöruðu þá faraó: „Hebresku konurnar eru ekki eins og þær egypsku. Þær eru hraustar og eru búnar að fæða áður en ljósmóðirin er komin til þeirra.“
-
-
Jósúabók 2:3–5Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
3 Konungurinn í Jeríkó sendi þá menn til Rahab með þessi boð: „Náðu í mennina sem komu til þín og gista í húsi þínu því að þeir eru komnir til að kanna allt landið.“
4 En konan faldi báða mennina og sagði: „Mennirnir komu að vísu til mín en ég vissi ekki hvaðan þeir voru. 5 Og þeir fóru þegar dimmt var orðið og loka átti borgarhliðinu. Ég veit ekki hvert þeir fóru en þið náið þeim ef þið flýtið ykkur á eftir þeim.“
-
-
1. Samúelsbók 19:12Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
12 Síðan hjálpaði hún Davíð að síga niður út um gluggann svo að hann gæti flúið og komist undan.
-
-
1. Samúelsbók 19:14Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
14 Sál sendi nú menn til að sækja Davíð en hún sagði: „Hann er veikur.“
-
-
1. Samúelsbók 21:2Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
2 Davíð svaraði Ahímelek presti: „Konungurinn fól mér að sinna ákveðnu erindi en sagði: ‚Enginn má vita neitt um þessa sendiför og fyrirmælin sem ég hef gefið þér.‘ Ég hef mælt mér mót við menn mína á ákveðnum stað.
-