25 Þú ert trúr hinum trúfasta,+
ráðvandur hinum ráðvanda,+
26 falslaus hinum falslausa+
en leikur á hinn svikula.+
27 Þú frelsar undirokaða+
en auðmýkir hrokafulla.+
28 Þú lætur lampa minn skína, Jehóva.
Guð minn, þú lýsir upp myrkur mitt.+
29 Með þinni hjálp get ég ráðist gegn ránsflokki,+
með mætti Guðs get ég klifið múra.+
30 Vegur hins sanna Guðs er fullkominn,+
orð Jehóva er hreint.+
Hann er skjöldur öllum sem leita athvarfs hjá honum.+