-
2. Konungabók 21:2–6Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
2 Hann gerði það sem var illt í augum Jehóva og fylgdi viðbjóðslegum siðum þjóðanna+ sem Jehóva hafði hrakið burt undan Ísraelsmönnum.+ 3 Hann endurreisti fórnarhæðirnar sem Hiskía faðir hans hafði eytt,+ reisti ölturu handa Baal og gerði helgistólpa*+ eins og Akab Ísraelskonungur hafði gert.+ Hann féll fram fyrir öllum her himinsins og tilbað hann.+ 4 Hann reisti líka ölturu í húsi Jehóva+ þó að Jehóva hefði sagt: „Ég vil setja nafn mitt á Jerúsalem.“+ 5 Hann reisti ölturu handa öllum her himinsins+ í báðum forgörðum húss Jehóva.+ 6 Hann fórnaði syni sínum í eldi,* stundaði galdra, leitaði fyrirboða+ og réð andamiðla og spásagnarmenn.+ Hann gerði margt sem var illt í augum Jehóva og misbauð honum.
-