-
5. Mósebók 13:6–9Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
6 Segjum að bróðir þinn, sonur móður þinnar, eða sonur þinn eða dóttir, ástkær eiginkona þín eða nánasti vinur þinn* reyni að tæla þig með leynd og segi: ‚Förum og þjónum öðrum guðum,‘+ guðum sem hvorki þú né forfeður þínir þekktu, 7 guðum þjóðanna í kring, hvort heldur þær búa nærri eða fjarri, hvar sem er í landinu. 8 Þá skaltu ekki láta undan eða hlusta á hann+ og þú skalt ekki heldur vorkenna honum, hafa samúð með honum eða hlífa honum 9 heldur skaltu taka hann af lífi.+ Þú skalt vera fyrstur til að leggja hönd á hann til að taka hann af lífi og síðan á allt fólkið að gera slíkt hið sama.+
-