-
Esrabók 9:3, 4Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
3 Þegar ég heyrði þetta reif ég föt mín og yfirhöfn, reytti hár mitt og skegg og settist niður harmi sleginn. 4 Allir sem báru djúpa virðingu fyrir* orðum Guðs Ísraels söfnuðust þá saman í kringum mig vegna ótrúmennsku þeirra sem höfðu snúið heim úr útlegðinni, en ég sat áfram harmi sleginn þar til kominn var tími til að færa kornfórnina um kvöldið.+
-
-
Daníel 9:3–5Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
3 Ég sneri mér þá til Jehóva, hins sanna Guðs. Ég bað innilega til hans og fastaði+ í hærusekk og ösku. 4 Ég bað til Jehóva Guðs míns, gerði játningu og sagði:
„Jehóva, hinn sanni Guð, þú mikli og mikilfenglegi Guð sem heldur sáttmálann og sýnir þeim tryggan kærleika+ sem elska þig og halda boðorð þín.+ 5 Við höfum syndgað og brotið af okkur, framið illskuverk og gert uppreisn.+ Við höfum vikið frá boðorðum þínum og ákvæðum.
-