18 Þegar Jehóva gaf þeim dómara+ var Jehóva með dómaranum og frelsaði þá úr höndum óvina þeirra meðan dómarinn var á lífi. Jehóva kenndi í brjósti um þá*+ þegar þeir kveinuðu undan þeim sem kúguðu þá+ og fóru illa með þá.
15 Þá hrópuðu þeir til Jehóva á hjálp+ og Jehóva gaf þeim mann til að frelsa þá,+ Ehúð+ Gerason Benjamíníta,+ en hann var örvhentur.+ Einu sinni sendu Ísraelsmenn hann með skatt til Eglons Móabskonungs.
4 En Jóahas grátbað Jehóva um miskunn* og Jehóva bænheyrði hann því að hann hafði séð harðræðið sem Ísrael þurfti að þola af hendi Sýrlandskonungs.+5 Jehóva sá Ísrael fyrir frelsara+ til að leysa þá úr greipum Sýrlands, og Ísraelsmenn gátu búið á heimilum sínum eins og áður.*