-
5. Mósebók 4:25, 26Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
25 Ef svo fer, eftir að þið hafið búið lengi í landinu og eignast börn og barnabörn, að þið hegðið ykkur skaðvænlega og gerið úthöggvið líkneski+ af einhverju tagi og gerið það sem er illt í augum Jehóva Guðs ykkar svo að þið misbjóðið honum+ 26 þá kalla ég himin og jörð til vitnis gegn ykkur í dag um að ykkur verður snarlega útrýmt úr landinu sem þið farið nú inn í yfir Jórdan og takið til eignar. Þá lifið þið ekki lengi þar heldur verður ykkur gereytt.+
-
-
Esekíel 20:8Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
8 En þeir gerðu uppreisn gegn mér og vildu ekki hlusta á mig. Þeir köstuðu ekki frá sér viðurstyggðunum sem voru fyrir augum þeirra og sneru ekki baki við viðbjóðslegum skurðgoðum Egyptalands.+ Þá ákvað ég að úthella reiði minni yfir þá og gefa heift minni lausan tauminn gegn þeim í Egyptalandi.
-