-
Jeremía 18:7–10Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
7 Þegar ég segist ætla að uppræta, rífa niður og eyða þjóð eða ríki+ 8 en sú þjóð snýr af sinni illu braut sem ég fordæmdi, þá hætti ég við þær hörmungar* sem ég hafði ákveðið að leiða yfir hana.+ 9 Og þegar ég segist ætla að byggja upp og gróðursetja þjóð eða ríki 10 en hún gerir það sem er illt í augum mínum og hlýðir mér ekki, þá hætti ég við það góða* sem ég hafði ákveðið að gera fyrir hana.‘
-
-
Jeremía 24:5, 6Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
5 „Jehóva Guð Ísraels segir: ‚Útlagarnir frá Júda, sem ég hef sent burt frá þessum stað til lands Kaldea, eru eins og þessar góðu fíkjur. Ég lít á þá með velþóknun. 6 Ég vaki yfir þeim, þeim til góðs, og leiði þá aftur til þessa lands.+ Ég byggi þá upp og ríf þá ekki niður. Ég gróðurset þá og ríf þá ekki upp með rótum.+
-