-
Esekíel 38:4–6Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
4 Ég sný þér við, kræki krókum í kjálka þína+ og leiði þig út ásamt öllum her þínum,+ hestum og riddurum sem allir eru tignarlega til fara – miklu liði með stóra skildi og smáa* og með sverð í höndum. 5 Persar, Eþíópar og Pútmenn+ eru með þeim, allir búnir skildi og hjálmi, 6 Gómer og allar hersveitir hans og afkomendur Tógarma+ lengst úr norðri ásamt öllum hersveitum sínum – já, margar þjóðir eru með þér í för.+
-
-
Opinberunarbókin 19:17, 18Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
17 Ég sá líka engil sem stóð fyrir miðri sólinni og hrópaði hárri röddu til allra fuglanna sem fljúga um miðjan himin: „Komið, safnist saman til hinnar miklu kvöldmáltíðar Guðs+ 18 til að éta hold konunga, hold herforingja og hold hraustmenna,+ hold hesta og þeirra sem sitja á þeim+ og hold allra, frjálsra jafnt sem þræla og hárra jafnt sem lágra.“
-