Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Markús 3:1–6
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 3 Jesús gekk aftur inn í samkunduhús. Þar var maður með visna* hönd.+ 2 Farísear fylgdust vandlega með honum til að sjá hvort hann myndi lækna manninn á hvíldardegi því að þeir vildu ákæra hann. 3 Hann sagði við manninn með visnu* höndina: „Stattu upp og komdu fram í miðjan salinn.“ 4 Síðan spurði hann þá: „Er leyfilegt að gera gott eða illt á hvíldardegi, að bjarga lífi eða deyða?“+ En þeir þögðu. 5 Hann leit á þá sem voru í kringum hann, reiður og miður sín yfir kaldlyndi þeirra,+ og sagði við manninn: „Réttu fram höndina.“ Hann rétti fram höndina og hún varð heilbrigð. 6 Þá gengu farísearnir út og tóku þegar í stað að leggja á ráðin með fylgismönnum Heródesar+ um að drepa hann.

  • Lúkas 6:6–11
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 6 Annan hvíldardag+ gekk hann inn í samkunduhúsið og fór að kenna. Þar var maður með visna* hægri hönd.+ 7 Fræðimenn og farísear fylgdust vandlega með Jesú til að sjá hvort hann myndi lækna á hvíldardegi en þeir vildu finna tilefni til að ákæra hann. 8 Hann vissi aftur á móti hvað þeir hugsuðu+ og sagði því við manninn með visnu* höndina: „Stattu upp og komdu fram í miðjan salinn.“ Hann stóð þá upp og kom. 9 Síðan sagði Jesús við þá: „Ég spyr ykkur: Er leyfilegt að gera gott eða illt á hvíldardegi, að bjarga lífi* eða tortíma því?“+ 10 Hann leit á alla í kringum sig og sagði svo við manninn: „Réttu fram höndina.“ Maðurinn gerði það og höndin varð heilbrigð. 11 En þeir urðu hamslausir af reiði og fóru að ræða sín á milli hvað þeir gætu gert við Jesú.

Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila