-
Markús 9:17–29Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
17 Einn úr mannfjöldanum svaraði honum: „Kennari, ég kom með son minn til þín því að hann er haldinn anda sem gerir hann mállausan.+ 18 Hvar sem andinn grípur hann kastar hann honum til jarðar og hann froðufellir, gnístir tönnum og missir máttinn. Ég bað lærisveina þína að reka hann út en þeir gátu það ekki.“ 19 Jesús sagði þá við fólkið: „Þú trúlausa kynslóð,+ hve lengi þarf ég að vera hjá ykkur? Hve lengi þarf ég að umbera ykkur? Komið með hann til mín.“+ 20 Þeir komu þá með drenginn til Jesú. En um leið og andinn sá hann olli hann krampaflogi hjá drengnum og hann féll til jarðar, veltist um og froðufelldi. 21 Jesús spurði þá föður hans: „Hve lengi hefur þetta hrjáð hann?“ Hann svaraði: „Frá barnæsku, 22 og oft hefur andinn kastað honum bæði í eld og vatn til að fyrirfara honum. En ef þú getur gert eitthvað hafðu þá samúð með okkur og hjálpaðu okkur.“ 23 Jesús sagði við hann: „‚Ef þú getur,‘ segirðu. Sá sem trúir er fær um allt.“+ 24 Faðir barnsins hrópaði samstundis: „Ég trúi! Hjálpaðu mér að eignast sterkari trú!“*+
25 Jesús tók nú eftir að mannfjöldi streymdi til þeirra. Hann ávítaði þá óhreina andann og sagði við hann: „Þú mállausi og heyrnarlausi andi, ég skipa þér að fara úr honum og komdu aldrei í hann aftur!“+ 26 Andinn æpti og olli miklum krampaflogum og fór síðan úr honum. Drengurinn virtist vera dáinn þannig að flestir sögðu: „Hann er dáinn!“ 27 En Jesús tók í hönd hans, reisti hann upp og hann stóð á fætur. 28 Þegar Jesús var kominn inn í hús og var einn með lærisveinunum spurðu þeir hann: „Hvers vegna gátum við ekki rekið hann út?“+ 29 Hann svaraði: „Þessa tegund er ekki hægt að reka út nema með bæn.“
-
-
Lúkas 9:38–42Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
38 Maður nokkur kallaði: „Kennari, ég bið þig að líta á son minn því að hann er einkabarn mitt.+ 39 Illur andi grípur hann og hann æpir skyndilega, fær krampaflog og froðufellir. Og andinn er mjög tregur til að yfirgefa hann eftir að hafa misþyrmt honum. 40 Ég bað lærisveina þína að reka hann út en þeir gátu það ekki.“ 41 Jesús sagði þá: „Þú trúlausa og spillta kynslóð,+ hve lengi þarf ég að vera hjá ykkur og umbera ykkur? Komdu hingað með son þinn.“+ 42 En meðan drengurinn var að koma slengdi illi andinn honum til jarðar og olli miklu krampaflogi hjá honum. Jesús ávítaði óhreina andann, læknaði drenginn og gaf hann föður hans aftur.
-