-
Markús 11:1–3Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
11 Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu að Betfage og Betaníu+ við Olíufjallið sendi hann tvo lærisveina sína+ 2 og sagði við þá: „Farið inn í þorpið hér fram undan og um leið og þið komið þangað finnið þið fola sem er bundinn og enginn hefur enn komið á bak. Leysið hann og komið með hann hingað. 3 Ef einhver segir við ykkur: ‚Hvers vegna gerið þið þetta?‘ segið þá: ‚Drottinn þarf á honum að halda en hann sendir hann fljótt aftur til baka.‘“
-
-
Lúkas 19:28–31Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
28 Eftir að hafa sagt þetta hélt Jesús áfram upp til Jerúsalem. 29 Þegar hann nálgaðist Betfage og Betaníu við Olíufjallið+ sem svo er nefnt sendi hann tvo af lærisveinunum+ 30 og sagði: „Farið inn í þorpið hér fram undan og þegar þið komið þangað finnið þið fola sem er bundinn og enginn hefur nokkurn tíma komið á bak. Leysið hann og komið með hann hingað. 31 En ef einhver spyr ykkur: ‚Hvers vegna eruð þið að leysa hann?‘ skuluð þið svara: ‚Drottinn þarf á honum að halda.‘“
-