-
Markús 14:32–36Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
32 Þeir komu nú til staðar sem heitir Getsemane og hann sagði við lærisveinana: „Setjist hérna meðan ég biðst fyrir.“+ 33 Hann tók Pétur, Jakob og Jóhannes með sér.+ Hann varð örvinglaður og angistarfullur 34 og sagði við þá: „Ég er yfirkominn af harmi.*+ Bíðið hér og vakið.“+ 35 Hann fór spölkorn frá þeim, féll til jarðar og bað þess að verða hlíft við þessari stund ef hægt væri. 36 Hann sagði: „Abba,* faðir,+ þú getur allt. Taktu þennan bikar frá mér. En gerðu þó ekki eins og ég vil heldur eins og þú vilt.“+
-
-
Lúkas 22:40Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
40 Þegar þeir komu á staðinn sagði hann við þá: „Biðjið svo að þið fallið ekki í freistni.“+
-