-
Lúkas 8:35–37Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
35 Fólk kom nú til að sjá hvað hafði gerst. Það kom til Jesú og fann manninn sem illu andarnir höfðu farið úr sitja klæddan og með réttu ráði við fætur Jesú. Og fólkið varð hrætt. 36 Þeir sem höfðu séð þetta sögðu fólkinu frá hvernig andsetni maðurinn hafði orðið heilbrigður. 37 Fjölmargir frá Gerasenahéraði báðu þá Jesú að fara burt því að mikill ótti greip þá. Hann fór þá um borð í bátinn til að halda brott.
-