-
Matteus 9:3–8Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
3 Nokkrir fræðimenn hugsuðu með sér: „Maðurinn guðlastar.“ 4 Jesús vissi hvað þeir voru að hugsa og sagði: „Hvers vegna hugsið þið illt í hjörtum ykkar?+ 5 Hvort er auðveldara að segja: ‚Syndir þínar eru fyrirgefnar,‘ eða: ‚Stattu upp og gakktu‘?+ 6 En til að þið vitið að Mannssonurinn hefur vald á jörð til að fyrirgefa syndir …“ og síðan segir hann við lamaða manninn: „Stattu upp, taktu börurnar og farðu heim.“+ 7 Hann stóð þá upp og fór heim til sín. 8 Þegar fólkið sá þetta varð það óttaslegið og lofaði Guð sem hafði gefið mönnum slíkt vald.
-
-
Lúkas 5:21–26Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
21 Þá sögðu fræðimennirnir og farísearnir hver við annan: „Hver er hann að guðlasta svona? Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?“+ 22 En Jesús skynjaði hvað þeir hugsuðu og sagði: „Hvað hugsið þið í hjörtum ykkar? 23 Hvort er auðveldara að segja: ‚Syndir þínar eru fyrirgefnar,‘ eða: ‚Stattu upp og gakktu‘? 24 En til að þið vitið að Mannssonurinn hefur vald á jörð til að fyrirgefa syndir …“ og nú talar hann við lamaða manninn: „þá segi ég þér: Stattu upp, taktu börurnar og farðu heim.“+ 25 Hann stóð þá upp fyrir framan þá, tók það sem hann hafði legið á og fór heim til sín og lofaði Guð. 26 Allir voru agndofa og lofuðu Guð. Þeir fylltust lotningu og sögðu: „Það er ótrúlegt sem við höfum séð í dag!“
-