-
Lúkas 22:3–6Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
3 Þá fór Satan í Júdas sem var kallaður Ískaríot og var einn þeirra tólf.+ 4 Hann fór og talaði við yfirprestana og varðforingja musterisins um það hvernig hann gæti svikið Jesú í hendur þeirra.+ 5 Þeir glöddust við þetta og komu sér saman um að greiða honum silfurpeninga fyrir.+ 6 Hann féllst á það og fór að leita að hentugu tækifæri til að svíkja hann í hendur þeirra þegar fólkið væri ekki nærri.
-