Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Matteus 8:28, 29
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 28 Þegar hann kom í Gadarenahérað hinum megin við vatnið komu tveir andsetnir menn til hans frá gröfunum.+ Þeir voru svo ofsafengnir að enginn þorði að fara um veginn sem lá þar hjá. 29 Þeir æptu: „Hvað viltu okkur, sonur Guðs?+ Ertu kominn hingað til að kvelja okkur+ fyrir tímann?“+

  • Markús 5:2–10
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 2 Um leið og Jesús steig úr bátnum kom til hans maður frá gröfunum. Hann var haldinn óhreinum anda. 3 Hann hélt til hjá gröfunum og fram til þessa hafði enginn getað bundið hann tryggilega, ekki einu sinni með keðju. 4 Hann hafði oft verið fjötraður á höndum og fótum en hann sleit af sér hlekkina og braut fjötrana og enginn var nógu sterkur til að ráða við hann. 5 Dag og nótt æpti hann stanslaust hjá gröfunum og á fjöllunum og lamdi sig með grjóti. 6 Þegar hann kom auga á Jesú álengdar hljóp hann til hans, féll fram fyrir honum+ 7 og hrópaði hárri röddu: „Hvað viltu mér, Jesús, sonur hins hæsta Guðs? Sverðu við Guð að kvelja mig ekki.“+ 8 En Jesús hafði sagt við andann: „Óhreini andi, farðu úr manninum.“+ 9 Jesús spurði hann: „Hvað heitirðu?“ Hann svaraði: „Ég heiti Hersing því að við erum margir.“ 10 Og hann þrábað Jesú að senda andana ekki úr héraðinu.+

Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila