-
Matteus 9:20–22Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
20 Kona sem hafði haft stöðugar blæðingar í 12 ár+ kom nú að honum aftan frá og snerti kögrið á yfirhöfn hans+ 21 því að hún hugsaði með sér: „Ef ég bara snerti yfirhöfn hans læknast ég.“ 22 Jesús sneri sér við og þegar hann kom auga á hana sagði hann: „Hertu upp hugann, dóttir. Trú þín hefur læknað þig.“+ Og konan varð samstundis heil heilsu.+
-
-
Markús 5:25–29Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
25 Meðal fólksins var kona sem hafði haft stöðugar blæðingar+ í 12 ár.+ 26 Hún hafði þjáðst mikið hjá mörgum læknum og eytt aleigu sinni en henni hafði ekki batnað heldur bara versnað. 27 Hún hafði heyrt um Jesú og kom nú að honum aftan frá í mannþrönginni og snerti yfirhöfn hans+ 28 því að hún sagði við sjálfa sig: „Ef ég snerti bara yfirhöfn hans læknast ég.“+ 29 Og blæðingarnar stöðvuðust samstundis, og hún fann að hún hafði læknast af þjakandi sjúkdómi sínum.
-