-
2. Mósebók 2:11–15Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
11 Þegar Móse var orðinn fullorðinn* gekk hann út til hebreskra bræðra sinna og sá hvernig þeir voru neyddir til að strita.+ Hann tók eftir Egypta sem var að berja hebreskan mann, einn af bræðrum sínum. 12 Móse leit í kringum sig og þegar hann sá að enginn var nærri drap hann Egyptann og faldi hann í sandinum.+
13 Daginn eftir gekk hann aftur út og sá þá tvo hebreska menn slást. Hann spurði þann sem átti sökina: „Af hverju slærðu félaga þinn?“+ 14 Hann svaraði: „Hver skipaði þig höfðingja og dómara yfir okkur? Ertu að hugsa um að drepa mig eins og þú drapst Egyptann?“+ Þá varð Móse hræddur og hugsaði með sér: „Þetta hefur þá komist upp.“
15 Faraó frétti þetta og vildi nú láta drepa Móse en Móse flúði undan honum til Midíanslands+ og þar settist hann niður við brunn.
-