-
2. Korintubréf 11:23–26Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
23 Eru þeir þjónar Krists? Ég svara eins og vitfirringur. Ég er það enn frekar: Ég hef unnið meira,+ setið oftar í fangelsi,+ verið barinn ótal sinnum og oft verið að dauða kominn.+ 24 Fimm sinnum hef ég fengið höggin 39* hjá Gyðingum,+ 25 þrisvar verið hýddur,+ einu sinni verið grýttur,+ þrisvar beðið skipbrot+ og verið sólarhring í opnu hafi. 26 Ég hef verið á tíðum ferðalögum, verið í hættu í ám, í hættu af völdum ræningja, af völdum samlanda minna+ og af völdum þjóðanna,+ í hættu í borgum+ og óbyggðum, í hættu á sjó og í hættu meðal falsbræðra.
-