Jósúabók
20 Jehóva sagði nú við Jósúa: 2 „Segðu Ísraelsmönnum: ‚Veljið ykkur griðaborgirnar+ sem ég talaði um við ykkur fyrir milligöngu Móse 3 til að sá sem verður manni að bana óviljandi eða af slysni* geti flúið þangað. Þær skulu vera ykkur griðastaðir þangað sem þið getið flúið undan hefnandanum.+ 4 Sá sem flýr til einnar af þessum borgum+ á að taka sér stöðu við borgarhliðið+ og leggja mál sitt fyrir öldunga borgarinnar. Þeir eiga þá að taka við honum inn í borgina og fá honum húsnæði svo að hann geti búið hjá þeim. 5 Ef hefnandinn veitir banamanninum eftirför eiga þeir ekki að framselja hann því að hann varð náunga sínum að bana af slysni* og hataði hann ekki áður.+ 6 Hann skal dvelja í borginni þar til dómstóll safnaðarins+ hefur tekið málið fyrir og búa þar þangað til æðstipresturinn+ sem gegnir embætti á þeim tíma deyr. Þá má banamaðurinn snúa aftur til borgar sinnar og heimilis, borgarinnar sem hann flúði frá.‘“+
7 Þá lýstu þeir heilagar* borgirnar Kedes+ í Galíleu í fjalllendi Naftalí, Síkem+ í fjalllendi Efraíms og Kirjat Arba,+ það er Hebron, í fjalllendi Júda. 8 Á Jórdansvæðinu austan við Jeríkó völdu þeir Beser+ í óbyggðunum á hásléttunni frá ættkvísl Rúbens, Ramót+ í Gíleað frá ættkvísl Gaðs og Gólan+ í Basan frá ættkvísl Manasse.+
9 Þessar borgir voru valdar handa öllum Ísraelsmönnum og útlendingum sem bjuggu á meðal þeirra. Hver sá sem varð manni óviljandi að bana gat flúið þangað+ svo að hann þyrfti ekki að deyja fyrir hendi hefnandans áður en hann væri leiddur fyrir dómstól safnaðarins.+