Postulasagan
3 Pétur og Jóhannes voru nú á leið upp í musterið til bænastundarinnar sem var um níundu stund* 2 og þá var verið að bera þangað mann sem hafði verið lamaður frá fæðingu. Á hverjum degi var hann settur við musterishliðið sem var nefnt Fagrahlið svo að hann gæti beðið þá sem gengu inn í musterið um ölmusu. 3 Þegar hann sá Pétur og Jóhannes á leið inn í musterið bað hann þá um ölmusu. 4 En þeir horfðu beint á hann og Pétur sagði: „Líttu á okkur.“ 5 Hann leit á þá með eftirvæntingu og bjóst við að fá eitthvað hjá þeim. 6 En Pétur sagði: „Silfur og gull á ég ekki en það sem ég hef gef ég þér. Í nafni Jesú Krists frá Nasaret: Gakktu!“+ 7 Síðan tók hann í hægri hönd hans og reisti hann upp.+ Samstundis urðu fætur hans og ökklar styrkir.+ 8 Hann spratt á fætur,+ tók að ganga og fór með þeim inn í musterið, gekk um, hoppaði og lofaði Guð. 9 Allt fólkið sá hann ganga um og lofa Guð. 10 Það áttaði sig á að þetta var maðurinn sem var vanur að sitja við Fagrahlið musterisins til að fá ölmusu.+ Það varð furðu lostið og himinlifandi yfir því sem hafði gerst.
11 Maðurinn hélt í Pétur og Jóhannes en fólkið var yfir sig undrandi og flykktist að þeim í súlnagöngum Salómons+ sem svo eru nefnd. 12 Þegar Pétur sá það sagði hann við fólkið: „Ísraelsmenn, af hverju eruð þið svona undrandi og af hverju starið þið á okkur eins og við hefðum af eigin mætti eða guðrækni gert honum kleift að ganga? 13 Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs,+ Guð forfeðra okkar, hefur upphafið þjón sinn,+ Jesú,+ sem þið framselduð+ og afneituðuð frammi fyrir Pílatusi þó að hann hefði ákveðið að láta hann lausan. 14 Já, þið afneituðuð þessum heilaga og réttláta manni og báðuð um að fá morðingja lausan+ 15 en drápuð höfðingja lífsins.+ En Guð reisti hann upp frá dauðum og við erum vottar þess.+ 16 Í nafni Jesú og vegna þess að við trúum á nafn hans hefur þessi maður, sem þið sjáið og þekkið, fengið mátt í fæturna. Trúin sem við höfum vegna hans hefur gert þennan mann alheilan fyrir augum ykkar allra. 17 Nú veit ég, bræður, að þið gerðuð þetta í vanþekkingu+ og hið sama er að segja um leiðtoga ykkar.+ 18 En þannig lét Guð rætast það sem hann lét alla spámenn sína segja fyrir, það er að Kristur hans myndi þjást.+
19 Iðrist+ því og snúið við+ til að syndir ykkar verði afmáðar.+ Þá koma tímar þar sem Jehóva* veitir nýjan kraft 20 og sendir Krist sem er útvalinn handa ykkur, það er að segja Jesú. 21 Himinninn á að geyma hann til þess tíma þegar allt verður endurreist sem Guð lét heilaga spámenn sína boða forðum daga. 22 Móse sagði: ‚Jehóva* Guð ykkar mun velja handa ykkur spámann eins og mig úr hópi bræðra ykkar.+ Þið skuluð hlusta á allt sem hann segir ykkur.+ 23 Hver* sem hlustar ekki á þennan spámann verður upprættur úr þjóð Guðs.‘+ 24 Allir spámennirnir, Samúel og þeir sem komu á eftir honum, allir sem hafa spáð, hafa líka kunngert þessa daga.+ 25 Þið eruð synir spámannanna og sáttmálans sem Guð gerði við forfeður ykkar+ þegar hann sagði við Abraham: ‚Vegna afkomanda þíns munu allar ættir jarðar hljóta blessun.‘+ 26 Guð sendi þjón sinn fyrst til ykkar,+ eftir að hafa kallað hann, til að blessa ykkur og snúa hverjum og einum ykkar frá vondum verkum.“