Jobsbók
3 Biður hann þig að miskunna sér
eða talar hann vingjarnlega til þín?
4 Gerir hann samning við þig
og gerist þræll þinn ævilangt?
5 Leikurðu við hann eins og við fugl
eða hefur hann í bandi handa litlu stelpunum þínum?
6 Versla kaupmenn með hann?
Skipta þeir honum milli verslunarmanna?
7 Geturðu rekið skutla gegnum húð hans+
eða spjót í höfuð hans?
8 Leggðu höndina á hann.
Þú gleymir ekki þeim átökum og gerir það aldrei aftur!
9 Það er vonlaust að yfirbuga hann.
Það eitt að sjá hann flæmir þig burt.*
10 Enginn þorir að stugga við honum.
Hver vogar sér þá að setja sig upp á móti mér?+
11 Hver hefur gefið mér eitthvað að fyrra bragði svo að ég ætti að endurgjalda honum?+
Allt sem er undir himninum tilheyrir mér.+
12 Ég ætla ekki að þegja um limi hans,
um styrk hans og vel myndaðan líkama.
13 Hver hefur svipt hann brynjunni?
Hver fer inn í opið ginið á honum?
14 Hver getur glennt upp gin hans?
Tennurnar eru ógnvekjandi.
15 Á bakinu eru* beinplötur í röðum,
festar þétt saman.
16 Hver plata liggur svo þétt að næstu
að ekki kemst loft á milli.
17 Þær eru festar hver í aðra,
eru samfastar og verða ekki aðskildar.
18 Hann skýtur gneistum þegar hann fnæsir
og augu hans eru eins og geislar morgunroðans.
19 Eldingar ganga út úr gini hans,
eldneistarnir fljúga.
20 Reykur stendur út úr nösum hans
eins og úr ofni sem er kyntur með sefi.
21 Andgustur hans kveikir í kolum
og logi stendur úr gini hans.
22 Mikill kraftur býr í hálsi hans
og skelfing hleypur á undan honum.
23 Húðfellingarnar á kviðnum eru samfastar,
eins og steyptar á hann og þær gefa sig ekki.
24 Hjarta hans er hart eins og steinn,
já, hart eins og neðri kvarnarsteinn.
25 Þegar hann reisir sig hræðast jafnvel sterkir menn,
fát grípur um sig þegar hann berst um.
26 Ekkert sverð vinnur á honum
né spjót eða ör.+
27 Járn er honum eins og hálmstrá,
kopar eins og fúinn viður.
28 Ör rekur hann ekki á flótta,
slöngvusteinar verða að hálmi gegn honum.
29 Kylfu metur hann eins og hálm
og hann hlær þegar menn veifa kastspjóti.
30 Kviður hans er eins og hvöss leirbrot,
hann skilur eftir sig för í leðjunni eins og þreskisleði.+
31 Hann lætur ólga í djúpinu eins og í potti,
hann lætur sjóinn freyða eins og sjóðandi smyrsl.
32 Rákin á eftir honum glitrar,
ætla mætti að djúpið væri með hvítt hár.
33 Ekkert á jörðinni jafnast á við hann,
dýr sem var skapað án þess að kunna að hræðast.
34 Hann hvessir augun á allt sem er hrokafullt.
Hann er konungur yfir öllum tignarlegu villidýrunum.“