Sálmur
Jehóva Guð minn, mikill ert þú.+
Þú ert klæddur tign og ljóma.+
3 Hann leggur bjálka loftstofu sinnar ofar skýjunum,*+
gerir skýin að vagni sínum+
og fer um á vængjum vindsins.+
6 Þú huldir hana djúpum vötnum eins og með skikkju,+
vötnin náðu yfir fjöllin.
7 Þau flúðu undan ávítum þínum,+
hlupu í skelfingu undan þrumugný þínum
8 – fjöll risu+ og dalir sigu –
þangað sem þú hafðir ætlað þeim.
9 Þú settir vötnunum mörk sem þau máttu ekki fara yfir+
til að þau skyldu aldrei framar hylja jörðina.
10 Hann sendir vatn í dalina,
lindir spretta upp milli fjallanna.
11 Öll dýr merkurinnar drekka úr þeim,
villiasnarnir svala þorsta sínum.
12 Fuglar himins eiga sér náttból þar,
þeir syngja í laufþykkninu.
Þú lætur jörðina gefa af sér fæðu
15 og vín sem gleður hjarta mannsins,+
olíu sem gerir andlitið gljáandi
og brauð sem nærir hjarta mannsins.+
16 Tré Jehóva fá næga vökvun,
sedrustrén í Líbanon sem hann gróðursetti
17 þar sem fuglarnir gera sér hreiður.
Storkurinn+ á sér heimili í einitrjánum.
19 Þú gerðir tunglið til að afmarka tíma,
sólin veit hvenær hún á að setjast.+
20 Þú lætur dimma og það verður nótt+
þegar öll villtu skógardýrin fara á kreik.
22 Þegar sólin rís
draga þau sig í hlé og leggjast í bæli sín.
23 Maðurinn fer til vinnu
og stritar til kvölds.
24 Hversu mörg eru ekki verk þín, Jehóva!+
Þú gerðir þau öll af visku.+
Jörðin er full af því sem þú hefur skapað.
25 Þar er hafið, svo stórt og víðáttumikið,
iðandi af lifandi verum, stórum sem smáum.+
27 Þau bíða öll eftir þér,
að þú gefir þeim fæðu á réttum tíma.+
28 Þau safna því sem þú gefur þeim.+
Þú lýkur upp hendinni og þau seðjast af góðum gjöfum.+
29 Þú hylur andlit þitt og þau skelfast.
Ef þú tekur burt anda þeirra deyja þau og snúa aftur til moldarinnar.+
31 Dýrð Jehóva varir að eilífu.
Jehóva gleðst yfir verkum sínum.+
32 Hann lítur á jörðina og hún skelfur,
hann snertir fjöllin og það rýkur úr þeim.+
34 Megi hugsanir mínar gleðja hann.*
Ég fagna yfir Jehóva.
35 Syndarar munu hverfa af jörðinni
og hinir illu verða ekki til framar.+
Ég vil lofa Jehóva. Lofið Jah!*