Söngljóð eftir Davíð.
29 Veitið Jehóva verðskuldað lof, þið kappar,
lofið Jehóva fyrir dýrð hans og mátt.+
2 Veitið Jehóva það lof sem nafn hans á skilið,
fallið fram fyrir Jehóva í helgum skrúða.
3 Rödd Jehóva hljómar yfir vötnunum,
Guð dýrðarinnar þrumar,+
Jehóva er yfir mörgum vötnum.+
4 Rödd Jehóva er kraftmikil,+
rödd Jehóva er mikilfengleg.
5 Rödd Jehóva brýtur sundur sedrustrén,
já, Jehóva mölbrýtur sedrustré Líbanons.+
6 Hann lætur Líbanon stökkva eins og kálf,
Sirjon+ eins og ungt villinaut.
7 Rödd Jehóva lætur eldsloga leiftra.+
8 Rödd Jehóva lætur óbyggðirnar nötra,+
Jehóva lætur óbyggðir Kades+ nötra.
9 Rödd Jehóva skelfir hindirnar svo að þær bera
og gerir skógana nakta.+
Allir í musteri hans segja: „Dýrð!“
10 Jehóva situr í hásæti yfir flóðinu,+
Jehóva ríkir sem konungur að eilífu.+
11 Jehóva veitir fólki sínu styrk,+
Jehóva blessar fólk sitt með friði.+