Jobsbók
28 Til eru staðir þar sem vinna má silfur
og staðir þar sem menn hreinsa gull.+
4 Hann grefur námugöng fjarri mannabyggð,
á gleymdum stöðum fjarri alfaraleið.
Menn síga niður og sveiflast í reipum.
5 Matvæli vaxa á jörðinni
en niðri í henni er öllu umrótað eins og í eldi.*
6 Í grjótinu þar finnst safír
og í mölinni er gull.
7 Enginn ránfugl ratar þangað,
auga gleðunnar* hefur aldrei séð göngin.
8 Engin villidýr hafa stigið þar fæti,
ungljónið hefur ekki læðst þar um.
9 Maðurinn heggur grjóthart bergið,
hann grefur undan fjöllunum svo að þau hrynja.
10 Hann heggur vatnsrásir+ í bergið
og kemur auga á alls kyns gersemar.
11 Hann stíflar uppsprettur ánna
og dregur hið hulda fram í dagsljósið.
13 Enginn maður áttar sig á gildi hennar+
og hana er ekki að finna í landi hinna lifandi.
14 Djúpið segir: ‚Hún er ekki í mér!‘
og hafið segir: ‚Hún er ekki hjá mér!‘+
15 Hún fæst ekki fyrir skíragull
og ekki í skiptum fyrir silfur.+
16 Hún verður ekki keypt fyrir Ófírgull+
né sjaldgæfa ónyx- og safírsteina.
17 Gull og gler jafnast ekki á við hana
og hún fæst ekki í skiptum fyrir ker úr fínasta* gulli,+
18 svo ekki sé minnst á kóral og kristal+
því að viskan er verðmætari en pyngja full af perlum.
19 Tópas+ frá Kús jafnast ekki á við hana,
hún verður ekki einu sinni keypt fyrir skíragull.
20 Hvaðan kemur þá viskan
og hvar er uppspretta skilnings?+
21 Hún er hulin augum alls sem lifir,+
falin fyrir fuglum himins.
22 Eyðingin og dauðinn segja:
‚Við höfum bara frétt af henni.‘
23 Guð þekkir leiðina til hennar,
hann einn veit hvar hún býr+
24 því að hann horfir til endimarka jarðar
og sér allt undir himninum.+
25 Þegar hann gaf vindinum afl*+
og afmarkaði vatninu stað,+
26 þegar hann setti regninu lög+
og markaði þrumuskýjunum braut+
27 þá sá hann viskuna og skýrði hana,
hann fastmótaði hana og prófaði.
28 Og hann sagði við manninn: