Síðari Kroníkubók
2 Salómon gaf nú skipun um að reisa hús nafni Jehóva til heiðurs+ og konungshöll handa sér.+ 2 Hann valdi 70.000 óbreytta verkamenn* og 80.000 steinhöggvara til að vinna í fjöllunum+ og setti 3.600 umsjónarmenn yfir þá.+ 3 Salómon sendi líka þessi boð til Hírams,+ konungs í Týrus: „Þú sendir Davíð föður mínum sedrusvið svo að hann gæti byggt sér höll til að búa í.+ Gerðu nú það sama fyrir mig. 4 Ég ætla að reisa hús til heiðurs nafni Jehóva Guðs míns og helga það honum. Þar ætla ég að brenna ilmreykelsi+ frammi fyrir honum, sjá til þess að þar séu alltaf brauðstaflar*+ og færa brennifórnir kvölds og morgna+ á hvíldardögum,+ tunglkomudögum+ og hátíðum+ Jehóva Guðs okkar. Þetta er skylda Ísraels um alla framtíð. 5 Húsið sem ég reisi verður glæsilegt því að Guð okkar er meiri en allir aðrir guðir. 6 En hver er fær um að reisa honum hús? Himinninn og himnanna himnar rúma hann ekki.+ Hvernig á þá maður eins og ég að reisa honum hús nema til þess eins að láta fórnarreyk stíga upp frammi fyrir honum? 7 Sendu mér nú færan handverksmann sem getur unnið með gull, silfur, kopar,+ járn, purpuralita ull, djúprautt og blátt garn og kann útskurð. Hann á að vinna í Júda og Jerúsalem með handverksmönnum mínum sem Davíð faðir minn útvegaði.+ 8 Sendu mér líka sedrusvið, einivið+ og algúmmímvið+ frá Líbanon því að ég veit að þjónar þínir hafa mikla reynslu í að fella tré þar.+ Þjónar mínir munu vinna með þjónum þínum.+ 9 Þeir eiga að útvega mér mikið magn af timbri því að húsið sem ég ætla að reisa verður stórt og einstaklega fallegt. 10 Ég mun útvega þjónum þínum mat,+ skógarhöggsmönnunum sem fella trén: 20.000 kór* af hveiti, 20.000 kór af byggi, 20.000 böt* af víni og 20.000 böt af olíu.“
11 Híram, konungur í Týrus, svaraði Salómon með bréfi: „Jehóva hefur gert þig að konungi yfir þjóð sinni af því að hann elskar hana.“ 12 Híram sagði líka: „Lofaður sé Jehóva Guð Ísraels sem skapaði himin og jörð því að hann hefur gefið Davíð konungi vitran son+ sem býr yfir dómgreind og skilningi.+ Hann mun reisa hús handa Jehóva og konungshöll handa sjálfum sér. 13 Ég sendi færan handverksmann sem kann vel til verka, Híram Abí.+ 14 Hann er sonur konu af ættkvísl Dans en faðir hans var frá Týrus. Hann hefur reynslu í að vinna með gull, silfur, kopar, járn, steina, timbur, purpuralita ull, blátt og djúprautt garn og gæðaefni.+ Hann kann alls konar útskurð og getur hannað hvað sem hann er beðinn um.+ Hann á að vinna með handverksmönnum þínum og handverksmönnum herra míns, Davíðs föður þíns. 15 Herra minn, sendu nú hveitið, byggið, olíuna og vínið sem þú hefur lofað þjónum þínum.+ 16 Við munum fella tré í Líbanon,+ eins mörg og þú þarft, gera úr þeim fleka og flytja þau sjóleiðina til Joppe.+ Þú tekur síðan við þeim og flytur þau upp til Jerúsalem.“+
17 Salómon taldi nú alla útlenda menn sem voru í Ísrael+ eins og Davíð faðir hans hafði gert,+ og þeir voru 153.600. 18 Hann gerði 70.000 þeirra að óbreyttum verkamönnum,* 80.000 að steinhöggvurum+ í fjöllunum og 3.600 að umsjónarmönnum sem áttu að sjá til þess að mennirnir ynnu verkið.+