Sálmur
Til tónlistarstjórans. Eftir Davíð þjón Jehóva. Hann söng þetta ljóð fyrir Jehóva eftir að Jehóva hafði bjargað honum úr höndum allra óvina hans og úr höndum Sáls. Hann sagði:+
18 Ég elska þig, Jehóva, styrkur minn.+
2 Jehóva er bjarg mitt og vígi, bjargvættur minn.+
Guð minn er klettur+ minn þar sem ég leita athvarfs,
3 Ég ákalla Jehóva, hann sem á lof skilið,
og ég bjargast frá óvinum mínum.+
6 Í angist minni ákallaði ég Jehóva,
ég hrópaði stöðugt til Guðs míns á hjálp.
7 Þá hristist jörðin og skalf,+
undirstöður fjallanna léku á reiðiskjálfi,
þær nötruðu því að hann var reiður.+
11 Hann umlukti sig myrkri.+
Regnþykknið og skýsortinn
var eins og skýli í kringum hann.+
12 Úr ljómanum umhverfis hann
brutust hagl og eldneistar gegnum skýin.
13 Þá þrumaði Jehóva á himni.+
Hinn hæsti hóf upp rödd sína.+
Það rigndi hagli og eldneistum.
15 Árfarvegirnir komu í ljós,+
undirstöður jarðar sáust þegar þú, Jehóva, veittir refsingu
og blést úr nösum þér.+
16 Hann rétti út hönd sína frá hæðum,
greip í mig og dró mig upp úr djúpinu.+
18 Þeir stóðu gegn mér á ógæfudegi mínum+
en Jehóva studdi mig.
20 Jehóva launar mér réttlæti mitt,+
umbunar mér fyrir sakleysi mitt*+
21 því að ég hef haldið mig á vegi Jehóva
og ekki snúið baki við Guði mínum.
22 Ég hef alla dóma hans fyrir augum mér,
hunsa ekki ákvæði hans.
25 Þú ert trúr hinum trúfasta,+
ráðvandur hinum ráðvanda,+
26 falslaus hinum falslausa+
en leikur á hinn svikula.+
28 Þú lætur lampa minn skína, Jehóva.
Guð minn, þú lýsir upp myrkur mitt.+
Hann er skjöldur öllum sem leita athvarfs hjá honum.+
31 Hver er Guð nema Jehóva?+
Hver er klettur nema Guð okkar?+
33 Hann gerir mig fráan á fæti eins og hind,
lætur mig standa á hæðunum.+
34 Hann þjálfar hendur mínar til hernaðar,
handleggi mína til að spenna eirboga.
37 Ég elti óvini mína og næ þeim,
sný ekki aftur fyrr en ég hef eytt þeim.
38 Ég krem þá sundur svo að þeir rísa ekki upp aftur,+
ég treð þá undir fótum mínum.
39 Þú gefur mér styrk til bardaga,
fellir andstæðinga mína frammi fyrir mér.+
41 Þeir hrópa á hjálp en enginn kemur þeim til bjargar,
þeir hrópa jafnvel til Jehóva en hann svarar þeim ekki heldur.
42 Ég myl þá svo að þeir verði sem duft í vindi,
kasta þeim út eins og sora á stræti.
Þjóð sem ég þekki ekki mun þjóna mér.+
44 Fólkið hlýðir mér um leið og það heyrir um mig,
útlendingar koma skríðandi til mín.+
45 Útlendingar missa kjarkinn,
koma skjálfandi úr fylgsnum sínum.
46 Jehóva lifir! Lofaður sé klettur minn!+
Guð minn sem frelsar mig sé upphafinn.+
47 Hinn sanni Guð kemur fram hefndum fyrir mig,+
beygir þjóðirnar undir mig.
48 Hann bjargar mér frá ævareiðum óvinum mínum.
Þú lyftir mér hátt yfir þá sem ráðast gegn mér,+
frelsar mig frá ofbeldismönnum.