Síðari Konungabók
24 Á dögum Jójakíms réðst Nebúkadnesar+ konungur Babýlonar inn í landið og Jójakím laut valdi hans í þrjú ár. En síðan gerði hann uppreisn gegn honum. 2 Þá sendi Jehóva ránsflokka Kaldea,+ Sýrlendinga, Móabíta og Ammóníta gegn Jójakím. Jehóva sendi þá til að eyða Júda eins og hann hafði sagt+ fyrir milligöngu þjóna sinna, spámannanna. 3 Já, þetta kom fyrir Júda að fyrirskipun Jehóva. Hann vildi reka Júdamenn úr augsýn sinni+ vegna allra þeirra synda sem Manasse hafði drýgt+ 4 og vegna þess saklausa blóðs sem hann hafði úthellt.+ Hann fyllti Jerúsalem af saklausu blóði og Jehóva vildi ekki fyrirgefa það.+
5 Það sem er ósagt af sögu Jójakíms og öllu sem hann gerði er skráð í bókinni um sögu Júdakonunga.+ 6 Jójakím var lagður til hvíldar hjá forfeðrum sínum+ og Jójakín sonur hans varð konungur eftir hann.
7 Egyptalandskonungur hætti sér aldrei aftur í herferð úr landi sínu því að konungur Babýlonar hafði lagt undir sig allt landsvæðið sem hafði áður tilheyrt honum,+ allt frá Egyptalandsá*+ að Efratfljóti.+
8 Jójakín+ var 18 ára þegar hann varð konungur og hann ríkti í þrjá mánuði í Jerúsalem.+ Móðir hans hét Nehústa og var dóttir Elnatans frá Jerúsalem. 9 Hann gerði það sem var illt í augum Jehóva, alveg eins og faðir hans. 10 Um þetta leyti fóru menn Nebúkadnesars Babýlonarkonungs í herferð til Jerúsalem og settust um borgina.+ 11 Nebúkadnesar Babýlonarkonungur kom til borgarinnar meðan menn hans sátu um hana.
12 Jójakín Júdakonungur gekk þá út til Babýlonarkonungs+ ásamt móður sinni, þjónum sínum, höfðingjum* og hirðmönnum+ og Babýlonarkonungur tók hann til fanga. Þetta var á áttunda stjórnarári hans.+ 13 Hann flutti alla fjársjóðina úr húsi Jehóva og konungshöllinni+ og braut öll gulláhöldin sem Salómon Ísraelskonungur hafði gert fyrir musteri Jehóva.+ Allt þetta gerðist eins og Jehóva hafði sagt. 14 Hann flutti alla íbúa Jerúsalem í útlegð, alla höfðingjana,+ alla stríðskappana og alla handverksmenn og málmsmiði,*+ alls 10.000 manns. Enginn var skilinn eftir nema fátækustu íbúar landsins.+ 15 Hann flutti Jójakín+ í útlegð til Babýlonar+ ásamt konungsmóðurinni, eiginkonum konungs, hirðmönnum hans og merkustu mönnum landsins. Hann flutti þau í útlegð frá Jerúsalem til Babýlonar. 16 Konungur Babýlonar flutti einnig alla hermennina, 7.000 talsins, í útlegð til Babýlonar, og auk þess 1.000 handverksmenn og málmsmiði.* Þeir voru allir miklir kappar og þjálfaðir í hernaði. 17 Konungur Babýlonar gerði Mattanja föðurbróður Jójakíns+ að konungi í hans stað og breytti nafni hans í Sedekía.+
18 Sedekía var 21 árs þegar hann varð konungur og hann ríkti í 11 ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Hamútal+ og var dóttir Jeremía frá Líbna. 19 Hann gerði það sem var illt í augum Jehóva, alveg eins og Jójakím.+ 20 Það sem gerðist í Jerúsalem og Júda vakti reiði Jehóva og að lokum rak hann íbúana burt úr augsýn sinni.+ Sedekía gerði uppreisn gegn Babýlonarkonungi.+