Jobsbók
12 Job svaraði og sagði:
2 „Þið eruð greinilega vitrir menn*
og viskan deyr út með ykkur!
3 En ég veit líka mínu viti.
Ég stend ykkur ekki að baki.
Þetta er nú bara almenn þekking.
Réttlátur og saklaus maður er hafður að athlægi.
5 Hinn sjálfsöruggi gerir lítið úr ógæfunni
og telur að hún leggist bara á þá sem missa fótfestuna.
6 Í tjöldum ræningja ríkir friður+
og þeir sem ögra Guði búa við öryggi,+
þeir sem halda á guðum sínum.
7 Spyrðu dýrin og þau munu fræða þig,
fugla himinsins og þeir gefa þér svar.
8 Eða virtu fyrir þér* jörðina og hún fræðir þig
og fiskar sjávarins geta upplýst þig.
9 Hvert þeirra veit ekki
að hönd Jehóva hefur gert þetta?
12 Er ekki visku að finna hjá öldruðum+
og eykst ekki skilningur með árunum?
14 Það sem hann rífur niður verður ekki endurbyggt,+
það sem hann lokar getur enginn maður opnað.
15 Þegar hann heldur aftur af vatninu þornar allt upp,+
þegar hann sleppir því lausu færir það jörðina í kaf.+
16 Hjá honum er máttur og viska,+
sá sem villist og sá sem leiðir afvega tilheyra honum.
18 Hann leysir fjötra konunga+
og spennir belti um mitti þeirra.
20 Hann rænir trausta ráðgjafa málinu
og sviptir gamla menn* skynseminni.
22 Hann afhjúpar það sem er falið í myrkrinu+
og dregur niðdimmuna fram í birtuna.
23 Hann eflir þjóðir til að eyða þeim,
hann gerir þær fjölmennar til að leiða þær í útlegð.
24 Hann sviptir leiðtoga fólksins skynseminni
og lætur þá reika um veglaus öræfi.+