Esekíel
28 Orð Jehóva kom aftur til mín: 2 „Mannssonur, segðu við leiðtoga Týrusar: ‚Þetta segir alvaldur Drottinn Jehóva:
„Þar sem þú ert orðinn hrokafullur í hjarta+ segirðu: ‚Ég er guð.
Ég sit í guðahásæti úti í miðju hafi.‘+
En þú ert bara maður en ekki guð
þó að þér finnist þú vera guð.
3 Þú heldur að þú sért vitrari en Daníel+
og að enginn leyndardómur sé þér hulinn.
4 Þú aflaðir auðs með visku þinni og skilningi
og safnar gulli og silfri í fjárhirslur þínar.+
5 Viðskiptavit þitt færði þér mikinn auð+
og þú varðst hrokafullur í hjarta vegna auðlegðar þinnar.“‘
6 ‚Þess vegna segir alvaldur Drottinn Jehóva:
„Þar sem þér finnst þú vera guð
7 sendi ég útlendinga gegn þér, þá grimmustu meðal þjóðanna.+
Með sverð á lofti ráðast þeir á allt það fagra sem viska þín hefur aflað þér
og vanhelga tignarljóma þinn.+
8 Þeir senda þig ofan í gröfina
og þú hlýtur hræðilegan dauðdaga úti á opnu hafi.+
9 Ætlarðu enn þá að segja: ‚Ég er guð,‘ frammi fyrir þeim sem drepur þig?
Þú ert bara maður, ekki guð, í höndum þeirra sem vanhelga þig.“‘
10 ‚Þú deyrð fyrir hendi útlendinga sem óumskorinn maður
því að ég hef talað,‘ segir alvaldur Drottinn Jehóva.“
11 Orð Jehóva kom aftur til mín: 12 „Mannssonur, syngdu sorgarljóð um konunginn í Týrus og segðu við hann: ‚Alvaldur Drottinn Jehóva segir:
13 Þú varst í Eden, garði Guðs.
Þú varst prýddur alls konar dýrum steinum
– rúbín, tópas og jaspis, krýsólít, ónyx og jaði, safír, túrkis+ og smaragði.
Þeir voru greyptir í umgjarðir úr gulli
og voru gerðir daginn sem þú varst skapaður.
14 Ég skipaði þig og smurði sem verndarkerúb.
Þú varst á heilögu fjalli Guðs+ og gekkst innan um glóandi steina.
15 Þú varst óaðfinnanlegur í öllu sem þú gerðir frá sköpunardegi þínum
þar til ranglæti fannst í fari þínu.+
Þess vegna kem ég ekki fram við þig sem heilagan, þú verndarkerúb,
heldur rek þig burt af fjalli Guðs og tortími þér,+
burt frá hinum glóandi steinum.
17 Fegurð þín gerði þig hrokafullan í hjarta.+
Þú lést glæsileika þinn spilla visku þinni.+
Ég kasta þér til jarðar.+
Ég læt konunga stara á þig.
18 Þú hefur vanhelgað helgidóma þína með mörgum syndum þínum og óheiðarlegum viðskiptum.
Ég læt eld brjótast út hjá þér og eyða þér.+
Ég geri þig að ösku á jörðinni frammi fyrir öllum sem horfa á þig.
19 Allir sem þekktu þig meðal þjóðanna stara agndofa á þig.+
Endalok þín verða skyndileg og skelfileg,
þú hverfur fyrir fullt og allt.“‘“+
20 Orð Jehóva kom aftur til mín: 21 „Mannssonur, snúðu þér í átt að Sídon+ og spáðu gegn henni. 22 Segðu: ‚Þetta segir alvaldur Drottinn Jehóva:
„Ég ræðst gegn þér, Sídon, og verð upphafinn í þér miðri.
Menn komast að raun um að ég er Jehóva þegar ég fullnægi dómi yfir borginni og verð helgaður í henni.
23 Ég sendi drepsótt yfir hana og blóð flæðir um stræti hennar.
Menn falla í borginni þegar sverð sækir á hana úr öllum áttum
og fólk mun komast að raun um að ég er Jehóva.+
24 Þá verða Ísraelsmenn ekki lengur umkringdir hvössum þyrnum og skaðlegum þistlum,+ mönnum sem sýna þeim fyrirlitningu. Og fólk mun komast að raun um að ég er alvaldur Drottinn Jehóva.“‘
25 ‚Alvaldur Drottinn Jehóva segir: „Þegar ég safna Ísraelsmönnum saman frá þjóðunum sem þeim var tvístrað til+ verð ég helgaður í augum þjóðanna fyrir milligöngu þeirra.+ Þeir munu búa í landi sínu+ sem ég gaf Jakobi þjóni mínum.+ 26 Þeir búa þar við öryggi,+ byggja hús og planta víngarða.+ Þeir búa óhultir þegar ég fullnægi dómi yfir öllum nágrönnum þeirra sem sýna þeim fyrirlitningu+ og þeir komast að raun um að ég er Jehóva Guð þeirra.“‘“