Jeremía
30 Orðið sem kom til Jeremía frá Jehóva: 2 „Jehóva Guð Ísraels segir: ‚Skrifaðu í bók öll þau orð sem ég segi við þig. 3 „Þeir dagar koma,“ segir Jehóva, „þegar ég safna saman útlögum þjóðar minnar, Ísraels og Júda,“+ segir Jehóva. „Ég flyt þá aftur til landsins sem ég gaf forfeðrum þeirra og þeir eignast það á ný.“‘“+
4 Þetta eru orðin sem Jehóva flutti Ísrael og Júda.
5 Jehóva segir:
„Við heyrum skelfingaróp,
óttinn er allsráðandi og friðurinn enginn.
6 Spyrjið ykkur: Getur karlmaður fætt barn?
Hvers vegna eru öll andlit orðin náföl?
Þetta er neyðarstund fyrir Jakob
en honum verður bjargað.“
8 „Á þeim degi,“ segir Jehóva hersveitanna, „brýt ég okið af hálsi þínum og slít reipin* sundur. Aldrei aftur munu ókunnugir* gera þá* að þrælum sínum. 9 Þeir munu þjóna Jehóva Guði sínum og Davíð konungi sínum sem ég set yfir þá.“+
10 „Vertu ekki hræddur, þjónn minn, Jakob,“ segir Jehóva,
„og óttastu ekki, Ísrael,+
því að ég frelsa þig úr fjarlægu landi
og afkomendur þína úr landinu þar sem þeir eru í útlegð.+
Jakob snýr aftur heim og býr við frið og öryggi,
enginn mun hræða hann.“+
11 „Ég er með þér,“ segir Jehóva, „til að bjarga þér.
12 Jehóva segir:
„Brot þitt grær ekki,+
sár þitt er ólæknandi.
13 Enginn tekur að sér mál þitt,
við meininu er engin lækning.
Þú nærð ekki bata.
14 Allir ákafir elskhugar þínir hafa gleymt þér.+
Þeir hafa enga þörf fyrir þig lengur
því að ég hef slegið þig eins og óvinur,+
refsað þér eins og grimmur maður
því að sekt þín er mikil og syndir þínar margar.+
15 Af hverju æpirðu vegna meiðsla þinna?
Kvöl þín er ólæknandi.
Ég hef gert þér þetta
því að sekt þín er mikil og syndir þínar margar.+
Þeir sem ræna þig verða rændir
og ég læt þá sem stela frá þér verða þjófum að bráð.“+
17 „En ég lækna þig og græði sár þín,“+ segir Jehóva,
„þótt menn hafi kallað þig ‚hina útskúfuðu‘,
‚Síon sem enginn hefur þörf fyrir‘.“+
18 Jehóva segir:
„Ég kem aftur til tjalda Jakobs og safna saman útlögunum,+
ég miskunna mig yfir bústaði hans.
Borgin verður endurreist á hæð sinni+
og hallarvirkið mun standa á sínum fyrri stað.
19 Þaðan mun heyrast þakkarsöngur og hlátrasköll.+
Ég læt þeim fjölga og þeir verða ekki fáir.+
20 Synir hans verða eins og áður fyrr
og söfnuður hans verður stöðugur frammi fyrir mér.+
Ég dreg til ábyrgðar alla sem kúga hann.+
21 Leiðtogi hans mun koma af honum
og valdhafi hans verður úr hans eigin röðum.
Ég leyfi honum að nálgast mig og hann mun koma til mín.“
„Hver myndi annars þora að* nálgast mig?“ segir Jehóva.
22 „Þið verðið þjóð mín+ og ég verð Guð ykkar.“+
23 Stormur Jehóva, reiði hans, brýst fram,+
stormsveipur þyrlast yfir höfuð hinna illu.
24 Brennandi reiði Jehóva linnir ekki
fyrr en hann hefur framfylgt áformum hjarta síns og komið þeim til leiðar.+
Þið munuð skilja það á síðustu dögum.+