Sálmur
118 Þakkið Jehóva því að hann er góður,+
tryggur kærleikur hans varir að eilífu.
2 Ísrael segi nú:
„Tryggur kærleikur hans varir að eilífu.“
3 Þeir sem tilheyra ætt Arons segi nú:
„Tryggur kærleikur hans varir að eilífu.“
4 Þeir sem óttast Jehóva segi nú:
„Tryggur kærleikur hans varir að eilífu.“
6 Jehóva er mér við hlið, ég óttast ekki neitt.+
Hvað geta mennirnir gert mér?+
8 Betra er að leita athvarfs hjá Jehóva
en að treysta á menn.+
9 Betra er að leita athvarfs hjá Jehóva
en að treysta á höfðingja.+
11 Þær umkringdu mig, já, ég var umkringdur á alla vegu
en í nafni Jehóva
hrakti ég þær burt.
12 Þær umkringdu mig eins og býflugur
en þær fuðruðu upp eins og eldur í þyrnum.
Í nafni Jehóva
hrakti ég þær burt.+
13 Mér var hrint* harkalega til að ég skyldi falla
en Jehóva hjálpaði mér.
14 Jah er skjól mitt og styrkur,
hann hefur bjargað mér.+
15 Fagnaðar- og siguróp*
berast frá tjöldum réttlátra.
Hægri hönd Jehóva sýnir mátt sinn.+
16 Hægri hönd Jehóva er upphafin,
hægri hönd Jehóva sýnir mátt sinn.+
17 Ég ætla ekki að deyja, nei, ég ætla að lifa
til að kunngera verk Jah.+
19 Opnaðu fyrir mér hlið réttlætisins,+
ég ætla að ganga þar inn og lofa Jah.
20 Þetta er hlið Jehóva,
hinn réttláti gengur þar inn.+
21 Ég lofa þig því að þú svaraðir mér+
og þú bjargaðir mér.
24 Þetta er dagurinn sem Jehóva gerði,
við gleðjumst og fögnum á honum.
25 Við biðjum þig, Jehóva, viltu bjarga okkur!
Jehóva, viltu veita okkur sigur!
26 Blessaður er sá sem kemur í nafni Jehóva.+
Við blessum ykkur frá húsi Jehóva.
27 Jehóva er Guð,
hann gefur okkur ljós.+
28 Þú ert Guð minn og ég lofa þig,
Guð minn, ég vil upphefja þig.+