Sálmur
Söngljóð fyrir hvíldardaginn.
92 Það er gott að þakka Jehóva+
og syngja nafni þínu lof,* þú Hinn hæsti,
2 að boða tryggan kærleika þinn+ að morgni
og trúfesti þína um nætur
3 við undirleik tístrengja hljóðfæris og lútu,
við óm hljómfagurrar hörpu.+
4 Þú hefur glatt mig, Jehóva, með dáðum þínum,
ég hrópa fagnandi yfir verkum handa þinna.
6 Enginn óskynsamur maður getur þekkt þær,
enginn heimskingi getur skilið þetta:+
7 Þegar vondir menn spretta eins og illgresi*
og allir afbrotamenn blómstra
verður þeim útrýmt fyrir fullt og allt.+
8 En þú, Jehóva, ert upphafinn um eilífð.
9 Fagnaðu sigri yfir óvinum þínum, Jehóva,
sjáðu hvernig óvinir þínir hverfa
og öll illmenni tvístrast.+
11 Ég horfi sigurglaður á fjandmenn mína.+
Ég heyri að árásarmenn mínir séu fallnir.
13 Þeir eru gróðursettir í húsi Jehóva,
þeir blómstra í forgörðum Guðs okkar.+
14 Jafnvel á gamals aldri* dafna þeir+
og eru þróttmiklir* og hraustir+
15 og boða að Jehóva sé réttlátur.
Hann er klettur minn+ og hjá honum er ekkert ranglæti.