Esekíel
8 Á sjötta árinu, á fimmta degi sjötta mánaðarins, þegar ég sat í húsi mínu og öldungar Júda sátu frammi fyrir mér, greip alvaldur Drottinn Jehóva í mig með hendi sinni. 2 Ég leit upp og sá veru sem líktist manni og virtist vera úr eldi. Fyrir neðan það sem virtist vera mitti hans var eldur+ og fyrir ofan mitti var hann skínandi eins og hvítagull.*+ 3 Hann rétti fram það sem líktist hendi og greip í höfuðhár mitt. Í sýn frá Guði lyfti andi mér upp milli himins og jarðar og flutti mig til Jerúsalem, að innra hliðinu+ sem snýr í norður, en þar stóð skurðgoðið* sem vakti afbrýði Guðs.+ 4 Þar var dýrð Guðs Ísraels+ eins og ég hafði séð í sýninni á dalsléttunni.+
5 „Mannssonur,“ sagði hann við mig, „líttu til norðurs.“ Ég leit þá til norðurs og þar, norðan við altarishliðið, stóð þetta skurðgoð afbrýðinnar* við innganginn. 6 Síðan sagði hann við mig: „Mannssonur, sérðu hvað Ísraelsmenn gera hér? Það er svo hræðilegt og viðbjóðslegt+ að ég verð að fara burt frá helgidómi mínum.+ Þú átt samt eftir að sjá enn meiri viðbjóð.“
7 Hann fór síðan með mig að inngangi forgarðsins og þar sá ég að það var gat á múrveggnum. 8 Hann sagði við mig: „Mannssonur, stækkaðu gatið á múrnum.“ Ég stækkaði gatið og sá þá dyr. 9 Hann sagði: „Farðu inn og sjáðu allt það illa og viðbjóðslega sem menn aðhafast hér.“ 10 Ég gekk inn og sá þar myndir af alls konar skriðkvikindum og viðbjóðslegum skepnum+ og öll andstyggileg skurðgoð* Ísraelsmanna.+ Myndirnar voru ristar upp um alla veggi. 11 Sjötíu af öldungum Ísraels stóðu frammi fyrir þeim, þeirra á meðal Jaasanja Safansson.+ Hver og einn var með reykelsisker í hendinni og ilmandi reykurinn steig upp af þeim.+ 12 „Mannssonur,“ sagði hann, „sérðu hvað öldungar Ísraels gera í myrkrinu, hver og einn í innstu herbergjunum þar sem skurðgoð* þeirra standa? Þeir segja: ‚Jehóva sér okkur ekki. Jehóva hefur yfirgefið landið.‘“+
13 Hann hélt áfram: „Þú færð að sjá fólk aðhafast enn hræðilegri viðbjóð en þetta.“ 14 Síðan fór hann með mig að norðurhliði húss Jehóva og þar sá ég konur sitja og gráta guðinn Tammús.
15 „Sérðu þetta, mannssonur?“ spurði hann. „Þú átt eftir að sjá enn hræðilegri viðurstyggð en þetta.“+ 16 Hann fór síðan með mig í innri forgarð húss Jehóva.+ Þar við innganginn að musteri Jehóva, milli forsalarins og altarisins, voru um 25 menn sem sneru bakinu í musteri Jehóva. Þeir sneru andlitinu í austur og krupu fyrir sólinni í austri.+
17 Hann sagði við mig: „Mannssonur, sérðu þetta? Finnst Júdamönnum það smámunir að stunda þennan viðbjóð, að fylla landið ofbeldi+ og misbjóða mér hvað eftir annað? Þeir halda jafnvel greininni* upp að nösum mér. 18 Þess vegna læt ég til mín taka í reiði minni. Ég mun ekki vorkenna þeim né sýna meðaumkun.+ Þótt þeir hrópi til mín hárri röddu hlusta ég ekki á þá.“+