Síðari Samúelsbók
6 Davíð safnaði aftur saman öllum bestu hermönnum Ísraels, 30.000 mönnum. 2 Síðan lagði hann af stað ásamt öllu liði sínu til Baala í Júda til að sækja örk hins sanna Guðs.+ Frammi fyrir henni ákalla menn nafn Jehóva hersveitanna+ sem situr í hásæti sínu yfir kerúbunum.*+ 3 En örk hins sanna Guðs var flutt á nýjum vagni+ úr húsi Abínadabs+ á hæðinni. Ússa og Ahjó synir Abínadabs stjórnuðu vagninum.
4 Þeir fluttu örk hins sanna Guðs úr húsi Abínadabs á hæðinni og Ahjó gekk á undan henni. 5 Davíð og allir Ísraelsmenn fögnuðu frammi fyrir Jehóva og léku á alls konar hljóðfæri úr einiviði, á hörpur og önnur strengjahljóðfæri,+ tambúrínur,+ sjálfóma* og málmgjöll.+ 6 En þegar þeir komu á þreskivöll Nakóns lá við að uxarnir veltu vagninum. Þá rétti Ússa út höndina og greip í örk hins sanna Guðs.+ 7 Reiði Jehóva blossaði upp gegn Ússa og hinn sanni Guð greiddi honum banahögg+ fyrir að sýna slíkt virðingarleysi.+ Hann lét þar lífið við hliðina á örk hins sanna Guðs. 8 En Davíð gramdist það* að reiði Jehóva skyldi hafa brotist út gegn Ússa. Staðurinn var nefndur Peres Ússa* og heitir það enn þann dag í dag. 9 Davíð varð hræddur við Jehóva+ þennan dag og sagði: „Hvernig á örk Jehóva að geta komist til mín?“+ 10 Davíð vildi ekki flytja örk Jehóva heim til sín í Davíðsborg.+ Í staðinn lét hann fara með hana heim til Óbeðs Edóms+ í Gat.*
11 Örk Jehóva var í húsi Óbeðs Edóms í Gat í þrjá mánuði og Jehóva blessaði Óbeð Edóm og allt heimilisfólk hans.+ 12 Davíð konungi var sagt: „Jehóva hefur blessað hús Óbeðs Edóms og allt sem hann á vegna arkar hins sanna Guðs.“ Davíð fór þá glaður í bragði heim til Óbeðs Edóms til að sækja örk hins sanna Guðs og flytja hana upp til Davíðsborgar.+ 13 Þegar þeir sem báru+ örk Jehóva höfðu gengið sex skref fórnaði hann nauti og alikálfi.
14 Davíð dansaði af öllum mætti frammi fyrir Jehóva, klæddur* línhökli.+ 15 Davíð og allir Ísraelsmenn fluttu örk+ Jehóva upp eftir með fagnaðarópum+ og hornablæstri.+ 16 En þegar örk Jehóva kom til Davíðsborgar leit Míkal+ dóttir Sáls út um gluggann og sá Davíð konung hoppa og dansa í hringi frammi fyrir Jehóva. Hún fyrirleit hann þá í hjarta sínu.+ 17 Örk Jehóva var nú borin inn og henni komið fyrir á sínum stað í tjaldinu sem Davíð hafði slegið upp fyrir hana.+ Síðan færði Davíð brennifórnir+ og samneytisfórnir+ frammi fyrir Jehóva.+ 18 Eftir að Davíð hafði fært brennifórnirnar og samneytisfórnirnar blessaði hann fólkið í nafni Jehóva hersveitanna. 19 Auk þess gaf hann öllu fólkinu, öllum Ísraelsmönnum, bæði körlum og konum, einn kringlóttan brauðhleif á mann, eina döðluköku og eina rúsínuköku. Síðan fór fólkið heim til sín.
20 Þegar Davíð kom heim til að blessa heimilisfólk sitt gekk Míkal+ dóttir Sáls út á móti honum og sagði: „Mikið var konungur Ísraels virðulegur í dag þegar hann hljóp um hálfnakinn frammi fyrir ambáttum þjóna sinna eins og vitleysingar gera!“+ 21 Davíð svaraði Míkal: „Það var frammi fyrir Jehóva sem ég fagnaði. Jehóva valdi mig fram yfir föður þinn og alla fjölskyldu hans og gerði mig að leiðtoga yfir þjóð sinni, Ísrael.+ Þess vegna vil ég fagna frammi fyrir Jehóva. 22 Ég ætla að lítillækka mig enn frekar og verða smár í eigin augum en ambáttirnar sem þú nefndir munu meta mig mikils.“ 23 En Míkal+ dóttir Sáls var barnlaus til æviloka.