Til tónlistarstjórans. Eftir Davíð.
11 Ég hef leitað athvarfs hjá Jehóva.+
Hvernig getið þið þá sagt við mig:
„Fljúgðu til fjalla eins og fuglinn.
2 Sjáðu hvernig hinir illu spenna bogann.
Þeir leggja örina á bogastrenginn
til að skjóta í myrkrinu á hina hjartahreinu.
3 Þegar stoðirnar eru rifnar niður,
hvað getur hinn réttláti þá gert?“
4 Jehóva er í sínu heilaga musteri,+
hásæti Jehóva er á himnum.+
Augu hans sjá, vökul augu hans rannsaka mennina.+
5 Jehóva rannsakar bæði hinn réttláta og hinn rangláta,+
hann hatar þann sem elskar ofbeldi.+
6 Hann leggur snörur fyrir hina illu,
eldur og brennisteinn+ og glóðheitur vindur verður hlutskipti þeirra
7 því að Jehóva er réttlátur+ og elskar réttlæti.+
Hinir ráðvöndu fá að sjá auglit hans.+