Sálmur
Söngljóð eftir Davíð þegar hann var í óbyggðum Júda.+
Ég er örmagna af þrá eftir þér
í þurru, skrælnuðu landi þar sem ekkert vatn er að finna.+
2 Þannig hef ég litið til þín í helgidóminum
og séð mátt þinn og dýrð.+
4 Ég vil lofa þig alla mína ævi,
lyfta upp höndum í þínu nafni.
5 Ég mettast af úrvalsbitum, þeim allra bestu,
þess vegna lofa ég þig með glaðværum vörum.+
6 Ég leiði hugann að þér þegar ég ligg uppi í rúmi,
hugsa um þig á nóttinni+
7 því að þú ert hjálp mín+
og ég hrópa af gleði í skugga vængja þinna.+
8 Ég held mig nálægt þér
og hægri hönd þín heldur fast í mig.+
9 En þeir sem sækjast eftir lífi mínu
steypast niður í djúp jarðar.
10 Þeir falla fyrir sverði
og verða sjakölum* að bráð.
11 En konungurinn mun gleðjast yfir Guði,
allir sem sverja við hann fagna*
því að munni lygaranna verður lokað.