Fyrra bréfið til Tímóteusar
2 Fyrst og fremst hvet ég til að beðið sé fyrir alls konar fólki með því að bera fram áköll, fyrirbænir og þakkarbænir, 2 þar á meðal fyrir konungum og öllum sem eru háttsettir*+ svo að við getum haldið áfram að lifa friðsamlegu og rólegu lífi í hreinni guðrækni og einlægni.+ 3 Þetta er gott í augum Guðs, frelsara okkar,+ og gleður hann, 4 en hann vill að alls konar fólk bjargist+ og fái nákvæma þekkingu á sannleikanum. 5 Til er einn Guð+ og einn milligöngumaður+ milli Guðs og manna,+ maðurinn Kristur Jesús+ 6 en hann gaf sjálfan sig sem samsvarandi lausnargjald fyrir alla*+ – um þetta verður vitnað þegar þar að kemur. 7 Ég var útnefndur boðberi og postuli+ til að vitna um þetta+ – ég segi sannleikann og lýg ekki – og til að fræða þjóðir+ um trú og sannleika.
8 Ég vil að á hverjum stað biðjist karlmenn fyrir í trúfesti með upplyftum höndum,+ án reiði+ og þrætu.+ 9 Og konurnar eiga að prýða sig viðeigandi* klæðnaði, með hógværð og skynsemi,* ekki með íburðarmiklum hárgreiðslum,* gulli, perlum eða rándýrum fötum+ 10 heldur með góðum verkum eins og sæmir konum sem segjast elska Guð.+
11 Kona á að þiggja fræðslu* í hljóði* með fullri undirgefni.+ 12 Ég leyfi ekki að kona kenni eða fari með vald yfir karlmanni heldur á hún að vera hljóð.*+ 13 Adam var myndaður fyrst og síðan Eva.+ 14 Auk þess lét Adam ekki blekkjast en konan lét algerlega blekkjast+ og braut boðorð Guðs. 15 En það er konunni til verndar að eignast börn,+ svo framarlega sem hún* lifir áfram í trú, kærleika og hreinleika og er skynsöm.*+