Sálmur
Söngljóð eftir Asaf.+
79 Guð, þjóðirnar hafa ráðist inn í erfðaland þitt.+
2 Þær hafa gefið fuglum himins lík þjóna þinna til ætis
og villidýrum jarðar hold þinna trúföstu.+
3 Þær hafa úthellt blóði þeirra eins og vatni kringum Jerúsalem
og enginn er eftir til að jarða þá.+
4 Nágrannar okkar smána okkur.+
Þeir sem búa í kringum okkur hæðast og gera gys að okkur.
5 Hve lengi, Jehóva, verður þú reiður? Að eilífu?+
Hve lengi á heift þín að brenna eins og eldur?+
6 Úthelltu reiði þinni yfir þjóðirnar sem þekkja þig ekki
og yfir ríkin sem ákalla ekki nafn þitt+
7 því að þau hafa gleypt Jakob
og lagt land hans í eyði.+
8 Láttu okkur ekki gjalda synda forfeðra okkar.+
Vertu fljótur að sýna okkur miskunn+
því að við erum langt niðri.
Bjargaðu okkur og fyrirgefðu* syndir okkar sökum nafns þíns.+
10 Hvers vegna ættu þjóðirnar að segja: „Hvar er Guð þeirra?“+
Láttu okkur sjá þann dag sem þjóðirnar átta sig á
að hefnt hefur verið fyrir úthellt blóð þjóna þinna.+
11 Heyrðu andvörp fangans.+
Beittu þínum mikla mætti* til að varðveita* hina dauðadæmdu.*+